Elmar Kári Enesson Cogic, einn besti leikmaður Aftureldingar, hefur ekkert spilað með liðinu það sem af er í Lengjubikarnum.
Það virðist reyndar ekki hafa haft nein áhrif á liðið því Afturelding er með fullt hús stiga eftir örugga sigra gegn Þór og FH.
Það virðist reyndar ekki hafa haft nein áhrif á liðið því Afturelding er með fullt hús stiga eftir örugga sigra gegn Þór og FH.
Í stuttu samtali við Fótbolta.net vonaðist Elmar til þess að snúa aftur í mars en hann hefur verið fjarri góðu gani vegna tognunar.
Elmar Kári er fæddur 2002. Hann skoraði tíu mörk í 22 deildarleikjum með Aftureldingu í fyrra og eitt mark í tveimur leikjum í umspilinu. Tímabilið á undan skoraði hann 17 mörk í Lengjudeildinni.
Afturelding fór upp úr Lengjudeildinni í fyrra og mætir Íslandsmeisturum Breiðabliks á útivelli í 1. umferð deildarinnar laugardaginn 5. apríl.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir


