Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 17. mars 2021 23:30
Aksentije Milisic
Einkunnir Chelsea og Atletico: Kante bestur - Suarez fær fimm
Mynd: Getty Images
Chelsea sló Atletico Madrid úr Meistaradeild Evrópu í kvöld með öruggum 2-0 sigri á Stamford Bridge.

Fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri Chelsea og því fer liðið örugglega áfram í 8-liða úrslitin. Atletico Madrid náði lítið sem ekkert að ógna marki heimamanna í kvöld og sanngjarn sigur því staðreynd.

Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu þeirra í kvöld og var N'golo Kante valinn maður leiksins. Hann fékk 8 í einkunn og stjórnaði ferðinni á miðjunni.

Hakim Ziyech gerði eitt mark í kvöld og hann fékk einnig 8. Marcos Alonso fékk 6 en restin af byrjunarliðinu fékk 7.

Hjá Atletico Madrid átti Luis Suarez slæman leik en hann fékk fimm fyrir sína frammistöðu. Stefan Savic fékk þá líka 5 en hann fékk rautt í leiknum.

Chelsea: Mendy (7), Azpilicueta (7), Zouma (7), Rudiger (7), James (7), Kovacic (7), Kante (8), Alonso (6), Ziyech (8), Havertz (7), Werner (7).

Varamenn Chelsea spiluðu ekki nóg til að fá einkunn.

Atletico Madrid: Oblak (6), Trippier (6), Savic (5), Gimenez (6), Renan Lodi (5), Llorente (6), Koke (6), Saul (6), Carrasco (6), Joao Felix (6), Suarez (5).

Varamenn: Correa (6), Lemar (6), Dembele (6), Hermoso (5).

Maður leiksins: N'Golo Kante.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner