Fotbolti.net
17.04.25 - 17:31
Brynjar Ingi Erluson

Íslendingaliðin úr leik í danska bikarnum

Sunneva Hrönn og stöllur hennar í FCK geta gengið stoltar frá borði

Sunneva Hrönn og stöllur hennar í FCK geta gengið stoltar frá borði

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Kvennaboltinn
Íslendingalið Bröndby og FCK eru úr leik í danska bikarnum eftir að hafa tapað í undanúrslitum í dag.
Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir lék allan leikinn í liði FCK sem tapaði naumlega fyrir Fortuna Hjörring, 2-1, eftir framlengdan leik.

Olivia Bergmann kom B-deildarliði FCK óvænt yfir gegn toppliði úrvalsdeildarinnar með marki úr vítaspyrnu eftir hálftímaleik, en heimakonur í Hjörring jöfnuðu snemma í þeim síðari og klúðruðu síðan víti þegar tuttugu mínútur voru eftir.

Það kom ekki að sök því hin 18 ára Signe Christensen náði að tryggja Hjörring sigurinn í framlengingu og liðið komið í úrslit bikarsins.

Annars mjög svo sterk frammistaða hjá FCK sem gerði jafntefli í fyrri leiknum.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir eru einnig úr leik eftir að Bröndby tapaði fyrir Nordsjælland, 2-1 og samanlagt 3-1 í þessari tveggja leikja rimmu.

Ingibjörg spllaði allan leikinn í vörninni en Hafrún kom inn af bekknum í síðari hálfleik.

Anna Walter skoraði og lagði upp fyrir Nordsjælland en eina mark Bröndby kom undir lok leiks.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.