Fotbolti.net
17.05.15 - 21:04
Mist Rúnarsdóttir

Ási Arnars: Léttir að fá fyrsta sigurinn í hús

Auglýsing
Ási Arnars: Léttir að fá fyrsta sigurinn í hús
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er alltaf mikill léttir að fá fyrsta sigurinn í hús og ná þremur stigum hérna. Ég var gríðarlega ánægður með það,\" sagði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis í viðtali við Fótbolta.net eftir 3-0 sigurinn á ÍBV.

„Mér fannst leikurinn einkennast af svolítið sterkum vindi í fyrri hálfleik og okkur gekk erfiðlega að halda í boltann. Okkur gekk erfiðlega að skapa eitthvað. En við vissum það alltaf að þetta yrði svolítil þolinmæðisvinna að opna þá og ég var mjög ánægður með mína leikmenn í dagl. Þeir héldu skipulaginu og í seinni hálfleiknum fannst mér við ráða algjörlega leiknum. Skapa okkur fullt af færum og skora þrjú góð mörk. Þannig að hrós til þeirra,\" bætti Ásmundur við en hægt er að horfa á allt viðtalið í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.