Samkvæmt TNT í Brasilíu hefur Real Madrid ákveðið að neita þremur leikmönnum liðsins að taka þátt á Ólympíuleikunum í Tokyo.
Það eru nokkrir Brassar á mála hjá Real sem átti afar svekkjandi tímabil á síðustu leiktíð og vann engan titil.
Eder Militao, Vinicius Junior og Rodrygo munu ekki fá að ferðast með Brasilíu á Ólympíuleikana að sögn miðilsins.
Önnur lið eru að gera það sama og Real en nefna má Flamengo, Palmeiras og Paris Saint-Germain.
Stórstjörnurnar Neymar og Marquinhos leika með PSG og verða ekki hluti af mótinu samkvæmt þessum fréttum.
Brasilía gæti því þurft að leita til óþekktra leikmanna fyrir mótið sem hefst þann 24. júlí.
Athugasemdir