Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. júní 2022 11:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lögreglan fer fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir Greenwood
Mynd: EPA

Mason Greenwood leikmaður Manchester United var handtekinn í janúar grunaður um gróft ofbeldi og nauðgun í garð kærustu sinnar.


Lögreglan í Manchester hefur farið fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir þessum tvítuga sóknarmanni.

MIrror greinir frá þessu og í samtali við lögregluna kom fram að farið verður yfir beiðnina í lokuðum réttarsal í næstu viku.

„Við getum staðfest að beiðni lögreglunnar um að framlengja gæsluvarðhald yfir Mason Greenwod muni vera skoðað þann 23 júní í dómsal í Manchester borg," segir talsmaður lögreglunnar,

Eins og fyrr segir verður farið yfir þessi mál fyrir lokuðum sal. Hvorki Greenwood né fjölmiðlar verða á svæðinu.


Athugasemdir
banner
banner