Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 17. júlí 2019 20:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Afríkukeppnin: Nígería tók bronsið
Ighalo skoraði eina mark leiksins i kvöld.
Ighalo skoraði eina mark leiksins i kvöld.
Mynd: Getty Images
Túnis 0-1 Nígería
0-1 Odion Ighalo ('3)

Túnis mætti í kvöld Nígeríu í leiknum um bronsverðlaunin í Afríkukeppninni.

Fyrsta og eina mark leiksins kom strax á þriðju mínútu þegar Odion Ighalo, fyrrum leikmaður Watford og núverandi leikmaður Shanghai Shenhua í Kína, var réttur maður á réttum stað þegar frákast féll fyrir fætur hans í teignum.

Ferjani Sassi og Firas Chaouat fengu bestu færi Túnis til þess að jafna leikinn en þeir skutu báðir framhjá marki Nígeríu.

Mark Ighalo var hans fimmta í mótinu og er hann með tveggja marka forskot á næsta mann í keppninni um markakóngstitilinn.

Þetta var fyrsta tap Túnis í venjulegum leiktíma í mótinu en liðið datt út eftir framlengdan leik gegn Senegal í undanúrslitum.

Senegal og Alsír mætast á föstudaginn í úrslitaleik mótsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner