Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. júlí 2022 17:34
Brynjar Ingi Erluson
Rangers kaupir Davies frá Liverpool
Ben Davies er á förum frá Liverpool
Ben Davies er á förum frá Liverpool
Mynd: Getty Images
Skoska félagið Rangers hefur komist að samkomulagi við Liverpool um kaup á enska varnarmanninum Ben Davies. Það er hinn afar virti Paul Joyce sem greinir frá.

Liverpool keypti Davies frá Preston í janúar á síðasta ári fyrir 500 þúsund pund þegar liðið var að ganga í gegnum mikil vandræði í vörninni.

Hann spilaði ekkert á því tímabili og var síðan lánaður til Sheffield United fyrir síðustu leiktíð.

Liverpool er nú að selja hann til Rangers fyrir 4 milljónir punda en félögin hafa komist um samkomulagi um kaupverð og heldur hann því nú til Skotlands.

Davies er ætlar að fylla skarð Calvin Bassey sem er að ganga í raðir Ajax í Hollandi fyrir 23 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner