Arnar Halls rekinn frá Njarðvík (Staðfest)

Arnar Hallsson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Arnar Hallsson.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

„Njarðvík ætlaði sér stóra hluti á tímabilinu en stjórn og Arnar eru sammála því að árangur liðsins hefur ekki staðið undir væntingum það sem af er sumri. Í ljósi stöðunnar telur stjórn deildarinnar það nauðsynlegt að gera breytingar," segir í tilkynningu sem Njarðvík var að senda frá sér.
Þar er staðfest að Arnar Hallsson hafi verið látinn víkja sem þjálfari en hann tók við liðinu fyrir tímabilið. Njarðvík tapaði fyrir Ægi á sunnudag og er í fallsæti í Lengjudeildinni þar sem liðið er nýliði.
Ekkert er sagt um það í tilkynningunni hvort ákveðið sé hver muni taka við stjórnartaumunum af Arnari.

Tilkynning Njarðvíkur:
Arnar lætur af störfum
Knattspyrnudeild Njarðvíkur og Arnar Hallsson, þjálfari meistaraflokks karla, hafa komist að samkomulagi um starfslok Arnars hjá félaginu. Arnar kom að krafti inn í Njarðvík í september sl. með spennandi hugmyndir fyrir félagið.
Njarðvík ætlaði sér stóra hluti á tímabilinu en stjórn og Arnar eru sammála því að árangur liðsins hefur ekki staðið undir væntingum það sem af er sumri. Í ljósi stöðunnar telur stjórn deildarinnar það nauðsynlegt að gera breytingar.
Ákvörðun sem þessi er bæði þung og erfið en við viljum nýta tækifærið til þess að þakka Arnari fyrir sitt framlag til félagsins. Arnar er hreinn og beinn og hefur samstarfið við Arnar verið heiðarlegt frá fyrsta degi. Þrátt fyrir stuttan tíma hefur hann skilið margt eftir sig hjá félagi sem er á uppleið.
Við þökkum Arnari fyrir samstarfið og óskum honum velfarnaðar í sínum verkefnum.
Stjórn Knattspyrnudeildar Njarðvíkur
Hér má sjá viðtal við Arnar eftir tapið gegn Ægi: