Fotbolti.net
17.07.23 - 17:45
Ívan Guðjón Baldursson

FH fær Ölmu frá Stjörnunni (Staðfest)

FH fær Ölmu frá Stjörnunni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

FH er búið að krækja í Ölmu Mathiesen frá Stjörnunni fyrir seinni hluta tímabilsins í Bestu deild kvenna.

Alma, sem er fædd 2003, er bakvörður og kantmaður og hefur aðeins komið við sögu í tveimur deildarleikjum með Stjörnunni í sumar.

Alma er uppalin hjá Gróttu/KR og lék hún fyrir meistaraflokk beggja félaga áður en hún skipti til Stjörnunnar fyrir tímabilið 2021.

Hlutverk Ölmu í hópi Stjörnunnar hefur farið minnkandi með tímanum en nú reynir hún fyrir sér með spútnik liði FH, sem er óvænt í fjórða sæti Bestu deildarinnar - fimm stigum fyrir ofan Stjörnuna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.