Fyrrum bakvörður Liverpool kominn til Sheffield (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Sheffield United er búið að krækja í franska bakvörðuinn Yasser Larouci á eins árs lánssamningi með kaupmöguleika.
Larouci er 22 ára gamall og kemur frá Troyes, sem er í eigu City Football Group.
Troyes féll úr efstu deild á síðustu leiktíð og spilaði Larouci 30 deildarleiki af 38 er liðið endaði aðeins með 24 stig úr 38 leikjum.
Larouci er uppalinn hjá Le Havre en var hjá Liverpool í fimm ár og kom við sögu í tveimur leikjum undir stjórn Jürgen Klopp.
Hann á fjóra leiki að baki fyrir U21 landslið Frakka og spilaði einn leik á EM U21 árs landsliða í sumar, er Frakkar lögðu Noreg að velli 1-0.
Larouci er annar leikmaðurinn sem Paul Heckingbottom fær til liðs við sig í sumar eftir að Anis Ben Slimane var keyptir frá Bröndby.
Bonjour, Yasser! ????
— Sheffield United (@SheffieldUnited) July 17, 2023
Yasser Larouci has penned a season-long loan at Bramall Lane, with an option to buy, arriving from Troyes for the entirety of the 2023/24 campaign.@YeloDrive | #SUFC ????


Mynd: Getty Images





