Hákon Arnar seldur til Lille (Staðfest)

Hákon á eitt mark í ellefu A-landsleikjum með Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon á eitt mark í ellefu A-landsleikjum með Íslandi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franska félagið Lille er búið að staðfesta kaup á Hákoni Arnari Haraldssyni frá FC Kaupmannahöfn. Kaupverðið er talið vera 17 milljónir evra, sem gerir Hákon að dýrasta leikmanni sem hefur verið seldur frá félaginu.
Hákon Arnar er tvítugur Skagamaður sem gekk til liðs við FCK frá ÍA fyrir fjórum árum síðan. ÍA er talið hafa haldið 15 til 20% af endursölurétti á leikmanninum og fær því væna upphæð í bankann fyrir þessi félagaskipti.
Lille er með betri liðum franska boltans og vann deildina tímabilið 2020-21. Nokkrir af bestu leikmönnum heims hafa stoppað við hjá félaginu en Hákon gerir fimm ára samning.
Hákon var lykilmaður í liði Kaupmannahafnar sem vildi ekki selja hann en neyddist til þess eftir nýjasta tilboð Lille.
Það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með næsti skrefi á ferli Hákonar, en hann leikur sem sóknartengiliður að upplagi þó hann geti einnig spilað úti á kanti og í fremstu víglínu.
Hákon mun leika með Lille í Sambandsdeildinni í haust eftir að félagið rétt missti af Evrópudeildinni í lokaumferð síðasta deildartímabils. Lille gerði þar jafntefli á útivelli gegn þegar föllnu liði Troyes, á meðan Rennes vann sinn leik og hirti fjórða sætið.





