Kristoffer farinn frá KA (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristoffer Forgaard Paulsen hefur yfirgefið herbúðir KA en þetta staðfesti Hallgrímur Jónasson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í dag.
„Hann er hættur í KA. Hann er farinn til Noregs, vildi fara aftur til Viking. Hann fór fyrir nokkrum vikum síðan og þess vegna hefur hann ekki verið í hóp," sagði Haddi.
Kristoffer kom á láni frá Viking fyrir tímabilið en hann kom aðeins við sögu í fimm leikjum í Bestu deildinni ásamt því að spila einn leik í Mjólkurbikarnum.
Það er ekki í plönum KA manna að fá liðstyrk í félagsskiptaglugganum sem opnar á morgun.
„Við erum búnir að fá Alex og Birgir er að fara. Auðvitað erum við alltaf að skoða hvar við getum styrkt liðið en eins og staðan er í dag er ekkert í bígerð," sagði Haddi.





