Liverpool hefur áhuga á Phillips - West Ham í viðræðum um Palhinha

Kalvin Phillips í landsleik með Englandi.

Mynd: EPA

West Ham reynir að fá hinn hæfileikaríka Joao Palhinha.

Mynd: Getty Images

Serbneski landsliðsmaðurinn Mitrovic nálgast Sádi-Arabíu.

Mynd: EPA

Segir Jon Dahl Tomasson upp störfum hjá Blackburn?

Slúðrið í boði Powerade á þessum afskaplega fallega mánudegi. Phillips, Palhinha, McTominay, Lukaku, De Gea og fleiri koma við sögu í pakkanum í dag, BBC tók saman það helsta.
Liverpool hefur áhuga á að fá Kalvin Phillips (27), miðjumann Manchester City, nú þegar Fabinho færist nær Sádi-Arabíu. (Mirror)
West Ham er í viðræðum um kaup á portúgalska miðjumanninum Joao Palhinha (27) frá Fulham. (TalkSport)
Erik ten Hag er viljugur til að selja skoska miðjumanninn Scott McTominay (25) til að hækka upphæðina sem hann hefur til leikmannakaupa til Manchester United. (Metro)
Eftir að hafa dregið sig úr úr baráttunni um að fá belgíska sóknarmanninn Romelu Lukaku hefur ítalska félagið Inter beint sjónum sínum að spænska sóknarmanninum Alvaro Morata (30) hjá Atletico Madrid og bandaríska framherjanum Folarin Balogun (22) hjá Arsenal. (La Gazzetta)
Lukaku mun ekki ferðast með Chelsea í æfingabúðir en félagið er með í forgangi að selja hann fyrir 34 milljónir punda. Áhugi frá Juventus veltur á því hvort serbneski sóknarmaðurinn Dusan Vlahovic (23) verði seldur til Paris St-Germain. (Fabrizio Romano)
David de Gea (32), fyrrum markvörður Manchester United, virðist ætla til Sádi-Arabíu en hann hefur fengið stór samningstilboð frá fleiri en einu félagi. (Daily Star)
Chelsea hafnaði fyrsta tilboði Fulham í enska vængmanninn Callum Hudson-Odoi (22). (Mail)
Argentínski miðjumaðurinn Giovani lo Celso (27) færist nær því að yfirgefa Tottenham en Napoli hefur opnað fyrir viðræður um leikmanninn. (Daily Mail)
Newcastle United hefur áhuga á georgíska sóknarleikmanninum Khvicha Kvaratskhelia (22) hjá Napoli. (Corriere Dello Sport)
Nottingham Forest vill ganga frá kaupum á brasilíska sóknarmanninum Matheus Nascimento (19) frá Botafogo. (UOL)
Al-Hilal í Sádi-Arabíu nálgast samkomulag um kaup á Aleksandar Mitrovic (28), sóknarmanni Fulham. (Football Insider)
Þrátt fyrir áhuga frá West Ham þá virðist þýski varnarmaðurinn Jonathan Tah (27) ætla að vera áfram hjá þýska félaginu Bayer Leverkusen. (Kicker)
Leicester City og Burnley virðast ætla að heyja einvígi um að fá sóknarmiðjumanninn Cole Palmer (21) lánaðan frá Manchester City. (Leicestershire Live)
Eftir að hafa snúið aftur til Paris St-Germain þá er hollenski miðjumaðurinn Xavi Simons (20) á leið til RB Leipzig á lánssamningi. (Fabrizio Romano)
Bayern München er opið fyrir því að selja þýska miðjumanninn Leon Goretzka (28) ef félagið fær yfir 34 milljónir punda. (Sky Þýskalandi)
Fílabeinsstrendingurinn Eric Bailly (29) og Brasilíumaðurinn Alex Telles (30) mættu ekki á fyrsta æfingadag Manchester United. Félagið planar að selja varnarmennina. (Mirror)
Jon Dahl Tomasson íhugar að segja upp hjá Blackburn eftir að eigendur félagsins, indversku kjúklingabændurnir í Venky’s, drógu skyndilega saman seglin og minnkuðu það fjármagn sem hann átti að fá til leikmannakaupa. Arnór Sigurðsson er meðal leikmanna Blackburn en Tomasson stefndi á að gera atlögu á að komast upp úr Championship-deildinni. (Mirror)