Marc Roca frá Leeds til Real Betis (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Annar leikmaður hefur yfirgefið Leeds United eftir fall liðsins niður í Championship-deildina.
Spænski miðjumaðurinn Marc Roca er kominn heim til Spánar á lánssamningi til Real Betis út komandi tímabil.
Roca er 26 ára og kom til Leeds frá Bayern München fyrir ári síðan. Hann lék 36 leiki í öllum keppnum á síðasta tímabili.

Fabrizio Romano segir að Real Betis sé með ákvæði um að geta keypt Roca alfarið eftir lánsdvölina en hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Leeds.
Marc Roca, in Sevilla in order to sign as new Real Betis player on loan with buy option clause from Leeds. ???????? pic.twitter.com/1IxOY5j11J
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 16, 2023