Njarðvík fær spænskan miðjumann (Staðfest)

Ibra Camara.

Mynd: Njarðvík

Ibra Camara.

Mynd: Njarðvík

Njarðvík hefur styrkt sig fyrir fallbaráttuna í Lengjudeildinni en liðið hefur fengið til sín spænska miðjumanninn Ibra Camara.
Camara er 27 ára gamall kraftmikill miðjumaður sem hefur leikið allan sinn feril í neðri deildum Spánar.
Hann gengur til liðs við Njarðvík frá C.D. Ebro á Spáni.

„Knattspyrnudeildin bindur miklar vonir við að Ibra hjálpi liðinu í baráttunni sem framundan er í seinni hluta Lengjudeildarinnar. Knattspyrnudeildin býður Ibra hjartanlega velkominn til Njarðvíkur!," segir í tilkynningu Njarðvíkinga.
Njarðvík er í fallsæti í Lengjudeildinni en liðið hefur aðeins unnið einn leik. Seint í gærkvöldi sendi félagið frá sér yfirlýsingu um að Arnar Hallsson væri hættur sem þjálfari liðsins.
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net eru Njarðvíkingar að skoða þjálfaramálin en ekki sé orðið ljóst hver lendingin verði. Rafn Markús Vilbergsson, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu og fyrrum þjálfari þess, hefur verið í umræðunni.