Fotbolti.net
17.07.23 - 07:40
Ívan Guðjón Baldursson

Samningi Vidal rift - Fljótur að finna sér nýtt lið (Staðfest)

Samningi Vidal rift - Fljótur að finna sér nýtt lið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíska félagið Athletico Paranaense er búið að tryggja sér Arturo Vidal á frjálsri sölu frá Flamengo.

Vidal er 36 ára gamall og lék hann meðal annars fyrir Juventus, Inter, Barcelona og FC Bayern á gríðarlega farsælum ferli sem atvinnumaður í Evrópu.

Hann er goðsögn í fótboltaheiminum og þá sérstaklega í heimalandi sínu Síle, þar sem hann á 140 landsleiki að baki og vann Copa America 2015 og 2016. Vidal spilar enn fyrir þjóð sína þrátt fyrir háan aldur. 

Vidal spilaði 51 leik á einu og hálfu ári hjá Flamengo og hjálpaði félaginu að vinna Copa Libertadores, suður-amerísku Meistaradeildina, og brasilíska bikarinn í fyrra. Hann komst að samkomulagi við félagið um samningslok til að ganga til liðs við Athletico Paranaense.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.