Willian samdi við Fulham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Fulham er búið að staðfesta samkomulag við brasilíska kantmanninn Willian sem mun spila fyrir félagið á komandi leiktíð í enska boltanum.
Willian var hjá Fulham í fyrra en náði ekki samkomulagi um nýjan samning eftir tímabilið og yfirgaf félagið því á frjálsri sölu um síðustu mánaðamót.
Fulham bauð Willian endurbætt samningstilboð eftir að leikmaðurinn yfirgaf félagið en samt var útlit fyrir að hann ætlaði frekar að skrifa undir hjá Nottingham Forest.
Eitthvað hefur gerst bakvið tjöldin því Willian skipti um skoðun og samdi aftur við Fulham.
Willian, sem verður 35 ára fyrir upphafsflaut næstu leiktíðar, reyndist mikilvægur hlekkur í liði Fulham á síðustu leiktíð. Hann kom að 11 mörkum í 27 úrvalsdeildarleikjum er Fulham endaði um miðja deild á sínu fyrsta tímabili aftur í efstu deild.
We are delighted to confirm that @willianborges88 has agreed a new deal that sees him return to Fulham. ????#WillianStays ????????
— Fulham Football Club (@FulhamFC) July 17, 2023





