Fotbolti.net
17.08.19 - 18:26
Ívan Guðjón Baldursson

England: Ótrúlegt að Tottenham hafi náð stigi á Etihad

England: Ótrúlegt að Tottenham hafi náð stigi á Etihad
Canon

Mynd: Getty Images

Man City 2 - 2 Tottenham
1-0 Raheem Sterling ('20)
1-1 Erik Lamela ('23)
2-1 Sergio Agüero ('35)
2-2 Lucas Moura ('56)
Manchester City og Tottenham gerðu 2-2 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Englandsmeistararnir voru þó við algjöra stjórn allan leikinn og skoruðu gestirnir úr báðum skotum sínum sem rötuðu á rammann.

Raheem Sterling gerði vel að koma City yfir eftir sendingu frá Kevin De Bruyne en Erik Lamela jafnaði nokkrum mínútum síðar eftir slaka varnarvinnu heimamanna.

De Bruyne lagði svo upp fyrir Sergio Agüero og var staðan 2-1 í hálfleik en heimamenn hefðu hæglega getað verið búnir að skora meira.

Leikurinn hélt áfram í sama fari í síðari hálfleik, City menn vaðandi í færum en boltinn rataði ekki í netið.

Hinn lágvaxni Lucas Moura kom af bekknum og jafnaði fyrir Tottenham með sinni fyrstu snertingu. Hann vann þá skallabolta við Kyle Walker eftir hornspyrnu Lamela.

City hélt áfram að sækja og skapa sér færi en boltinn fann einhvern veginn ekki leiðina í netið. Gabriel Jesus kom knettinum loks í netið á 92. mínútu en markið ekki dæmt gilt þökk sé myndbandstækninni. Dómarinn dæmdi hendi í aðdraganda marksins.

Man City átti 30 marktilraunir á móti 3 og missir toppsæti deildarinnar í bili. Liðin eru jöfn með fjögur stig eftir tvær umferðir.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.