Fotbolti.net
17.08.20 - 20:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Eiður Smári: Hver væru þín fyrstu viðbrögð?

Auglýsing
Eiður Smári: Hver væru þín fyrstu viðbrögð?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

„Ja, hver væru þín fyrstu viðbrögð ef þú fengir á þig mark þegar sjö sekúndur eru eftir, eftir að hafa jafnað og sýna þennan karakter?" spurði Eiður Smári Guðjohnsen, annar af þjálfurum FH, eftir tap gegn Stjörnunni í dag.
„Það hlýtur að vera svipað hjá mér," sagði Eiður eftir að fréttaritari svaraði spurningu hans. Þetta er bara svekkelsi en það sem er mest svekkelsi yfir að miðað við spilamennskuna sem við sýndum fyrstu 25 mínúturnar að hafa ekki nýtt það. Ef við hefðum komist yfir á þeim kafla þá hefði þetta spilast allt öðruvísi."

Hvað vantaði til að skora mark á þessum kafla?

„Það var síðasta sendingin, herslumunur. Allt spil fram á við var frábært og mikil hreyfing á bolta. Það vantaði aðeins kjark til að finna réttu sendinguna og svo eitt svona stöngin út dæmi. Við munum svo skoða af hverju við missum dampinn eftir þessa byrjun."

Eiður var spurður út Guðmund Kristjánsson og rauða spjaldið eftir um sjötíu mínútna leik. Guðmundur hafði skömmu áður fengið að líta gula spjaldið.

„Guðmundur er búinn að vera einn af okkar bestu mönnum síðan við Logi tókum við. Ég elska hann alveg jafnmikið og ég gerði áður," sagði Eiður.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.