Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. september 2019 21:15
Ívan Guðjón Baldursson
Andri Rafn Yeoman að flytja til Ítalíu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Rafn Yeoman, leikjahæsti leikmaður Breiðabliks frá upphafi, mun væntanlega ekki leika meira með liðinu á tímabilinu vegna flutninga til Ítalíu.

Hann flytur til höfuðborgarinnar, Róm, þar sem hann mun stunda nám við verkfræði.

Andri Rafn hefur spilað 19 af 20 deildarleikjum Blika í sumar og á 331 leik að baki fyrir félagið.

Andri Rafn er fæddur 1992 og hefur leikið fyrir Breiðablik alla sína tíð. Hann steig sín fyrstu skref sumarið 2009 og lék þá 13 leiki í deild og bikar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner