Al Gharafa í Katar er að undirbúa tilboð í Cenk Tosun framherja Everton samkvæmt frétt Sky Sports í dag.
Félagaskiptaglugginn í Katar lokar 30. september og Al Gharafa vill fá hinn 28 ára gamla Tosun í sínar raðir.
Félagaskiptaglugginn í Katar lokar 30. september og Al Gharafa vill fá hinn 28 ára gamla Tosun í sínar raðir.
Tosun hefur ekkert komið við sögu hjá Everton á tímabilinu og hann komst ekki í 18 manna leikmannanhóp liðsins gegn Bournemouth um helgina.
Tosun færðist neðar í röðinni þegar Moise Kean kom til Everton frá Juventus í sumar. Tosun hafnaði hins vegar í sumar tilboðum um að fara aftur heim til Tyrklands.
Samtals hefur Tosun skorað níu mörk í 44 leikjum með Everton en hann er fastamaður í landsliði Tyrklands sem er að berjast við Ísland um sæti á EM.
Athugasemdir