Dele Alli ferðaðist ekki með Tottenham til Búlgaríu þar sem Tottenham mætir Lokomotiv Plovdiv í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.
Það hefur verið í umræðunni að Alli gæti mögulega verið á leið til Real Madrid í einhvers konar skiptum fyrir Gareth Bale og þá hafa nokkrir miðlar orðað Alli við Manchester United, PSG og Inter Milan.

Alli var tekinn af velli í hálfleik gegn Everton á sunnudag og er hann einn af átta leikmönnum Tottenham sem ferðuðust ekki til Búlgaríu.
Alli er 24 ára gamall miðjumaður sem gekk í raðir Tottenham frá MK Dons árið 2015. Daily Mail er sagt vilja lána Alli út fyrir landsteinana ef félagið ákveður að láta Englendinginn fara.
Athugasemdir