ÍA mætti Val í Pepsi Max deildinni í dag og lauk leiknum með fjörugum 2-4 sigri gestanna.
Skagamenn voru ósáttir við dómgæsluna í leiknum og vildu þeir fá vítaspyrnu þegar leikmaður Vals virtist handleika knöttinn inn í teignum.
Jóhannes Karl sagði eftir að leik að það væri óskiljanlegt að Guðmundur Ársæll, dómari leiksins, hafi neitað að hlusta á línuvörðinn sem kallaði til hans að þetta væri vítaspyrna.
Arnar Már Guðjónsson, leikmaður ÍA, var ekki sáttur og lét Guðmund heyra það á Twitter eftir leikinn.
„Guðmundur Ársæll Aumingi Rassgatsson. Valur voru betri og áttu sigurinn skilið en við fengum tækifæri til að jafna. Rassgatsson hunsar þá línuvörð sem kallar víti, víti víti! í kerfið. Væri gaman að heyra útskýringu frá honum á því."
Þá vildi ÍA einnig fá rangstöðu í einu af mörkum Vals í leiknum.
Guðmundur Ársæll Aumingi Rassgatsson. Valur voru betri og áttu sigurinn skilið en við fengum tækifæri til að jafna. Rassgatsson hunsar þá línuvörð sem kallar víti, víti víti! í kerfið. Væri gaman að heyra útskýringu frá honum á því.
— Arnar Már Guðjónsson (@addari) September 17, 2020
Athugasemdir