Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. september 2021 22:00
Victor Pálsson
Dembele afar vinsæll eftir Twitter-færslu gærdagsins
Mynd: Getty Images
Moussa Dembele, leikmaður Lyon, vann sér inn nokkur stig á Twitter í gær eftir leik Lyon og Rangers í Evrópudeildinni.

Lyon mætti til leiks á Ibrox völlinn í Skotlandi og vann Rangers með tveimur mörkum gegn engu.

Dembele var hins vegar fjarri góðu gamni í þessum leik en hann er að glíma við meiðsli þessa stundina.

Dembele lék við góðan orðstír hjá Celtic í tvö ár en var keyptur til Lyon árið 2018. Hann var svo lánaður til Atletico Madrid fyrr á þessu ári.

Eins og flestir vita er mikill rígur á milli Celtic og Rangers en Celtic tapaði einnig sínum leik í gær 4-3 gegn Real Betis.

Eftir sigur Lyon í gær sendi Dembele út Twitter færslu þar sem orðin 'sumir hlutir breytast aldrei' koma fyrir.

Dembele er þar klárlega að ögra aðeins stuðningsmönnum Rangers en hann vann ófáa leiki gegn því liði er hann lék með Celtic.

Hann fékk góð viðbrögð frá stuðningsmönnum Celtic eftir þessa færslu en hana má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner