Fotbolti.net
17.10.17 - 17:50
Elvar Geir Magnússon

Börkur: Ætlum að vera á toppnum um ókomin ár

Auglýsing
Börkur og Ívar.

Börkur og Ívar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsmenn eiga fyrstu tvö félagaskiptin í Pepsi-deild karla þetta haustið. Í gær var gengið frá samningi við <a href=\"http://fotbolti.net/news/16-10-2017/oli-kalli-hann-vakti-mig-og-sagdi-ad-eg-vaeri-snarklikkadur\" target=\"_blank\">Ólaf Karl Finsen</a> og í dag skrifaði <a href=\"http://fotbolti.net/news/17-10-2017/ivar-orn-hausverkur-fyrir-ola-og-bjossa\" target=\"_blank\">Ívar Örn Jónsson</a> undir samning.
„Við erum að senda skýr skilaboð út á markaðinn. Við erum að fjárfesta til lengri tíma. Við ætlum að byggja upp á lið og liðsheild sem dugir næstu árin. Ólafur og Ívar eru góð púsl í þá mynd. Við erum með mjög sterkan hóp fyrir og menn þurfa að hafa sig alla við til að smella inn í okkar liðsheild. Við höfum lengi skoðað þessa tvo og pælt í þeim lengi, þeir munu styrkja okkur,\" segir Börkur.

Valsmenn ætla ekkert að sofna á verðinum eftir Íslandsmeistaratitilinn í sumar.

„Fótboltinn er þannig að það sem þú vannst í dag gefur þér ekkert endilega í dag eða á morgun. Við þurfum að hugsa vel um okkur og það erum við að gera. Við ætlum okkur að vera á toppnum um ókomin ár.\"

Valsmenn eiga sér draum um að vera fyrsta liðið til að komast í riðlakeppni í Evrópu.

„Það styttist í að íslenskt lið brjóti ísinn og komist í riðlakeppni, hvort sem það verður Valur eða annað félag. Evrópukeppnin sem slík gefur félögunum mikla peninga en þetta er lottó og það þarf að varlega og taka ekki of mikla áhættu.\"

Í viðtalinu hér að ofan talar Börkur nánar um komu Ívars, samkeppnina við Bjarna Ólaf og um frekari tíðindi af Hlíðarenda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.