Fotbolti.net
17.10.19 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Robertson: Gengið undanfarið skiptir engu máli gegn Man Utd

Robertson: Gengið undanfarið skiptir engu máli gegn Man Utd
Canon

Mynd: Getty Images

„Ég tel að gengið að undanförnu skipti ekki máli í svona leikjum," segir Andy Robertson, vinstri bakvörður Liverpool, fyrir leikinn gegn erkifjendunum í Manchester United á sunnudag.

Liverpool er með fullt hús stiga á toppnum á meðan Manchester United situr í 12. sæti deildarinnar.
„Það skiptir ekki máli þó að við höfum unnið átta í röð og þeir séu í basli. Þetta er Man United v Liverpool. Þetta er einstakur leikur og við sjáum hvort liðið vinnur," sagði Robertson.

„Ég er ekki í vafa um að þeir muni bregðast við eftir slaka frammistöðu gegn Newcastle. Ég er viss um að þeir verði gíraðir og vilji hefja tímabilið fyrir alvöru."

„Það er ekki til betri tími fyrir þá til þess en gegn okkur. Við höfum okkar markmið og við reynum að ná þeim."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.