Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 17. október 2020 21:14
Victor Pálsson
Bruno Fernandes óskaði markverði Newcastle til hamingju
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, óskaði Karl Darlow, markverði Newcastle, til hamingju eftir leik liðanna í kvöld.

Fernandes átti ekki sérstakan fyrri hálfleik fyrir Man Utd og klikkaði svo á vítaspyrnu á 58. mínútu seinni hálfleiks.

Eftir það komst Portúgalinn svo sannarlega í gang og bæði skoraði og lagði upp í 4-1 sigri gestanna.

Darlow átti fínan leik á milli stanganna hjá Newcastle og varð í kvöld fyrsti markvörðurinn til að verja víti frá Fernandes á Englandi.

Fernandes hefur verið gríðarlega öruggur á punktinum hingað til en Darlow sá við honum.

„Til hamingju Darlow. Hann er fyrsti markvörðurinn í deildinni sem nær að verja víti frá mér," sagði Fernandes eftir leik.

Miðjumaðurinn hefur samtals skorað 15 mörk í 27 leikjum fyrir Man Utd en þónokkur af þeim eru af punktinum.

Athugasemdir
banner
banner
banner