Besti leikmaður HK framlengir (Staðfest)

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
HK er búið að staðfesta nýjan samning við lykilleikmann sinn Arnþór Ara Atlason.
Arnþór Ari hefur verið lykilmaður í liði HK síðustu fjögur ár og er búinn að semja um að vera hjá félaginu í tvö ár til viðbótar.
Arnþór skoraði 6 mörk í 26 leikjum í Bestu deildinni í sumar og var valinn besti leikmaður tímabilsins á lokahófi HK í október.
Arnþór er fæddur 1993 og lék fyrir Þrótt R., Fram og Breiðablik áður en hann skipti yfir til HK.
Þetta eru frábærar fregnir fyrir Kópavogsliðið, sem bjargaði sér frá falli með 27 stig úr 27 umferðum í sumar og endaði tveimur stigum fyrir ofan ÍBV sem féll niður í Lengjudeildina.
Arnþór býr yfir mikilli reynslu úr íslenska boltanum þar sem hann á 182 leiki að baki í efstu deild og 80 leiki í næstefstu deild. Hann leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður.