Embla Dögg komin aftur heim til Fram (Staðfest)

Mynd: Fram

Mynd: Fram

Knattspyrnudeild Fram hefur staðfest endurkomu Emblu Daggar Aðalsteinsdóttur til félagsins eftir nokkur ár með yngri flokkum Vals og Víkings R.
Embla Dögg er fædd 2006 og spilaði hún sjö leiki í sumar, tvo með Víkingi R. í Lengjubikarnum og fimm með KH í 2. deild.
Embla er bráðefnilegur markvörður sem átti 17 ára afmæli í gær, sama dag og Fram gaf út tilkynninguna.
Hún gerir þriggja ára samning við Fram og mun berjast um byrjunarliðssæti á milli stanga liðsins.
„Það eru frábærar fréttir að Embla gangi til liðs við Fram. Embla er uppalinn Framari sem þurfti á sínum tíma því miður að leita annað til að fá verkefni við hæfi," segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram.
„Við sjáum það strax að Embla á góða möguleika á því að verða framtíðarmarkvörður meistaraflokks kvenna í Fram. Embla hefur góða hæð, er metnaðarfull og veit hvað þarf til þess að komast á þann stað sem við viljum sjá hana fara á í framtíðinni."
Fram nældi sér í 22 stig úr 18 umferðum í Lengjudeild kvenna í sumar.