Gísli með ákvæði í samningi sínum ef erlent félag bankar upp á

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gísli Eyjólfsson, leikmaður Breiðabliks, var til viðtals í Gula Spjaldinu sem er hlaðvarpsþáttur sem Albert Brynjar Ingason stýrir.
Gísli hefur á ferli sínum leikið hálft tímabil erlendis. Fyrri hluta ársins 2019 var hann hjá Mjällby í Svíþjóð á láni frá Breiðabliki.

Möguleiki er á því að hann geti haldið aftur erlendis, í samningi hans er allavega ákvæði sem á við um tilboð erlendis frá.
„Eftir leikina í Evrópu þá er maður að djóka af hverju maður reyndi ekki aðeins meira á sig þegar maður var lítill, eða af hverju maður gerði hlutina ekki betur. Umhverfið sem maður hefur upplifað eins og hjá FCK og Gent er geðveikt. Þú værir til í að vera í þessum aðstæðum," sagði Gísli aðspurður hvort leikirnir í Evrópu hefðu gefið honum trú á því að hann gæti spilað á háu leveli erlendis.
„Það er eitthvað smáaleturs dæmi í samningum held ég. Það þarf að koma tilboð, ég held að það hafi aldrei komið neitt tilboð," sagði Gísli sem játaði því að hann fengi að losna þægilega ef það kemur erlent félag sem vildi fá hann.
Gísli er 29 ára og uppalinn í Breiðabliki og hefur verið samningsbundinn félaginu allan sinn feril. Núgildandi samningur hans við Breiðablik rennur út eftir næsta tímabil.