Hrannar Snær yfirgefur Selfoss (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Selfoss
Hrannar Snær Magnússon er búinn að kveðja Selfoss eftir eitt tímabil með félaginu.
Hrannar Snær var fenginn frá KF fyrir tímabilið og kom hann við sögu í 15 af 22 leikjum Selfyssinga í Lengjudeildinni í ár.
Selfoss féll niður um deild og komst Hrannar að samkomulagi við stjórn félagsins um riftun á samningi.
„Ég vil þakka öllu þessu frábæra fólki á Selfossi sem ég hef kynnst innan sem utan vallar. Nú tekst ég á við nýjar áskoranir sem ég er spenntur fyrir. Takk fyrir mig og áfram Selfoss," sagði Hrannar.
Hrannar er hægri bakvörður og hægri kanntmaður að upplagi en getur einnig leyst báðar stöður vinstra megin. Hann er 21 árs gamall og verður áhugavert að fylgjast með næsta skrefi á ferlinum hans.