Fotbolti.net
17.11.23 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Telma Steindórs í Fram (Staðfest)

Telma Steindórs í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hertz
Fram tilkynnti í dag að Telma Steindórsdóttir væri gengin í raðir félagsins og skrifar hún undir tveggja ára samning í Úlfarsárdal.

Telma verður átján ára í næsta mánuði, hún er miðvörður sem kemur í Fram frá HK. Hún lék með Fram að láni seinni hluta síðasta tímabils.
Hún lék í yngri flokkunum með Breiðabliki og Val og hennar fyrsti meistarflokksleikur kom sumarið 2021 með KH. Hún hefur einnig leikið með KR í meistaraflokki. Í sumar lék hún átján leiki í Lengjudeildinni, tólf með HK fyrri hlutann og sex með Fram eftir að hún kom á láni.

Telma á að baki þrjá leiki með U17 landsliðinu og tvo með U16.

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, er ánægður með að hafa landað Telmu.

„Það er ofboðslega stórt fyrir Fram sem félag að Telma Steindórsdottir sé alfarið orðin leikmaður Fram. Telma kom virkilega sterk inn í okkar lið seinni hluta tímabils í fyrra og skoraði meðal annars í sínum fyrsta leik. Telma er mjög hæfileikaríkur hafsent með góða sendingagetu, les leikinn vel og fer ofboðslega vel með boltann. Hún spilaði eins og hinn mesti reynslubolti í hjarta varnarinnar hjá okkur í fyrra, tæplega 18 ára gömul. Ég er mjög spenntur að vinna með Telmu áfram, henni eru allir vegir færir í framtíðinni," segir Óskar í tilkynningu Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.