Brighton og Chelsea mætast í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni en hann hefst klukkan 20:00 og fer fram á AMEX-leikvanginum.
Graham Potter, stjóri Brighton, gerir tvær óvæntar breytingar en Leandro Trossard og Neil Maupay koma báðir á bekkinn. Steven Alzate og Danny Welbeck taka pláss þeirra í liðinu.
Jorginho, Callum Hudson-Odoi og Mason Mount koma allir inn í lið Chelsea á kostnað Malang Sarr, Mateo Kovacic og Christian Pulisic.
Chelsea spilar með fjögurra manna varnarlínu í dag.
Brighton: Sanchez; Lamptey, Veltman, Webster, Burn, Cucurella; Gross, Moder, Mac Allister, Alzate; Welbeck.
Chelsea: Kepa; Azpilicueta, Thiago Silva, Rüdiger; Hudson-Odoi, Kanté, Jorginho, Alonso; Mount, Ziyech; Lukaku.
Athugasemdir