Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 18. janúar 2022 22:42
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolti.net mótið: Keflavík skoraði fimm gegn HK
Ástbjörn Þórðarson skoraði tvívegis fyrir Keflavík
Ástbjörn Þórðarson skoraði tvívegis fyrir Keflavík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 3 - 5 Keflavík
1-0 Sjálfsmark
1-1 Ásgeir Páll Magnússon
1-2 Ásgeir Páll Magnússon
1-3 Ástbjörn Þórðarson
2-3 Bjarni Páll Runólfsson
2-4 Kian Williams
2-5 Ástbjörn Þórðarson
3-5 Bjarni Páll Runólfsson

Keflavík vann HK, 5-3, í Kórnum í A-deild Fótbolta.net mótsins í kvöld en þetta var fyrsti sigur Keflvíkinga í mótinu.

HK komst yfir með sjálfsmarki Kefvlíkinga áður en Ásgeir Páll Magnússon gerði tvö fyrir gestina áður en hálfleikurinn var úti.

Ástbjörn Þórðarson bætti við þriðja marki Keflavíkur áður en Bjarni Páll Runólfsson minnkaði muninn. Kian Williams gerði fjórða markið og Ástbjörn bætti við fimmta áður en Bjarni Páll gerði sárabótarmark fyrir HK.

Keflavík er með 3 stig í 3. sæti í riðli 1 á meðan HK er í neðsta sæti án stiga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner