Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. janúar 2022 23:45
Brynjar Ingi Erluson
Fulham skorað fleiri mörk á einni viku en Barnsley allt tímabilið
Fulham er að raða inn mörkum í B-deildinni
Fulham er að raða inn mörkum í B-deildinni
Mynd: EPA
Enska B-deildarliðið Fulham hefur unnið síðustu þrjá leiki sína í deildinni með sex mörkum eða meira en liðið vann Birmingham, 6-2, í kvöld.

Þann 11. janúar slátraði Fulham liði Reading, 7-0, þar sem Aleksandar Mitrovic og Harry Wilson léku sér að andstæðingunum áður en Fulham vann Bristol City 6-2 í síðustu umferð.

Mitrovic gerði þrennu í þeim en var týndur í kvöld er liðið vann Birmingham með sömu markatölu.

Fulham skoraði því nítján mörk á viku en liðið hefur skorað fleiri mörk á þeim tíma heldur en Barnsley hefur gert allt tímabilið.

Barnsley hefur aðeins skorað 16 mörk í 24 leikjum á þessari leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner