Fotbolti.net
18.01.23 - 23:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

De Gea skilur ekki af hverju Arsenal fær lengra frí

De Gea skilur ekki af hverju Arsenal fær lengra frí
Canon

Mynd: EPA

David de Gea markvörður Manchester United furðaði sig á því í viðtali eftir leik liðsins gegn Crystal Palace í kvöld að Arsenal fái lengra frí fyrir stórleikinn um helgina.

„Gríðarlegt högg að missa Casemiro fyrir sunnudaginn. Ég skil ekki af hverju Arsenal spilar ekki í eins og við. Nú erum við án eins af okkar bestu leikmönnum, ég skil þetta ekki," sagði De Gea.

Arsenal fær viku frí en United spilaði á laugardaginn og aftur í kvöld.

Úrslit kvöldsins eru mikið áfall fyrir United sem hefði getað komist upp í 2. sæti deildarinnar og sett enn frekari pressu á Arsenal með sigri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.