Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 18. febrúar 2020 06:00
Aksentije Milisic
Figo um Fernandes: Góð kaup hjá Man Utd
Mynd: Getty Images
Portúgalska goðsögnin Figo hefur sagt að Bruno Fernandes séu góð kaup hjá Manchester United, ef að hann nær að aðlagast hratt. United keypti Bruno á 68 milljónir punda í glugganum og hafði hann fyrir leikinn gegn Chelsea í gær spilað einn leik.

Bruno var í byrjunarliði United í gærkvöldi og lagði upp mark fyrir Harry Maguire í 0-2 útisigri United. Figo telur að Fernandes geti orðið mikilvægur fyrir United og að hann sé einn besti leikmaður sem Portúgal hefur.

„Hann er í landsliðinu og er miðjumaður sem getur skorað. Hann er með gæðin til þess að skora mörk og vera inn í teignum. Þetta er einn besti leikmaður Portúgals," segir Figo.

„Þetta eru góð kaup. Ég vona að hann nái að aðlagast nýrri deild hratt. Þetta er öðruvísi leikmaður, ekki framherji heldur miðjumaður."

Bruno spilaði 83 leiki fyrir Sporting og skoraði 39 mörk. Þá á hann 19 leiki að baki fyrir landslið Portúgals og hefur hann gert tvö mörk í þeim leikjum.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner