fim 18. febrúar 2021 19:20
Aksentije Milisic
„Bale elskar ennþá Madrid"
Mynd: Getty Images
Jonathan Barnett, umboðsmaður Gareth Bale, segir að leikmaðurinn elski ennþá Real Madrid og að hann myndi snúa aftur til liðsins án vandræða.

Barnett segir þá að samband Bale og Jose Mourinho sé gott þrátt fyrir að orðrómur hafi verið uppi að svo sé ekki.

Bale hefur gengið illa að koma sér í liðið hjá Tottenham og eru margir farnir að missa þolinmæðina á honum. Hann skoraði hins vegar og lagði upp í kvöld í Evrópudeildinni.

„Hann elskar ennþá Real Madrid, það eru engin vandræði. Þetta er frábært félag. Félagið verður bara að ákveða hvort það vill fá hann til baka. Það þarf að spyrja Zidane hvort hann vill hann, ég held að hann vilji hann ekki," sagði Barnett.

Bale hefur verið töluvert meiddur á þessu tímabili og þá er hann á varamannabekknum í deildinni þegar hann er heill heilsu.

„Það eru engin vandræði milli hans og Mourinho, sambandið er gott. Við búumst við að hann spili meira, þetta hefur ekki gengið nægilega vel og heldur ekki liðinu."
Athugasemdir
banner
banner
banner