Fotbolti.net
18.03.19 - 18:07
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Peralada, Katalóníu

Arnór Sig: Ætla að taka mínu hlutverki 100% sama hvað það verður

Auglýsing
Arnór Sigurðsson á landsliðsæfingu í dag.

Arnór Sigurðsson á landsliðsæfingu í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Við erum í 'middle of nowhere' en völlurinn er fínn og hótelið fínt svo við erum bara í góðum gír," sagði hinn ungi Arnór Sigurðsson við Fótbolta.net eftir æfingu Íslands í Peralada í dag.

Ísland er að búa sig undir leik gegn Andorra á föstudag og svo verður leikið gegn heimsmeisturum Frakklands á mánudag. Um er að ræða fyrstu tvo leikina í undankeppni EM.
„Við vitum að Andorra liggur mikið til baka og spilar vörn, það er barátta í þeim og við þurfum að vera klárir í erfitt verkefni. Fókusinn er núna algjörlega á Andorraleikinn og við klárum hann áður en við hugsum um Frakkaleikinn."

„Ég ætla bara að taka mínu hlutverki 100% sama hvað það verður," sagði Arnór spurður um væntingar sínar um spiltíma.

Arnór spilar með CSKA Moskvu en tímabilið í Rússlandi er nýfarið af stað. Hann var smávægilega meiddur um daginn en segir að allt sé komið í lag.

„Ég lenti í smá veseni með ökklann er orðinn 100% klár."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar Skagamaðurinn líka um titilbaráttuna í Rússlandi og gott gengi ÍA!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.