Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 18. mars 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Elneny vonast eftir að fá nýjan samning
Mohamed Elneny, miðjumaður Arsenal, vonast eftir að fá nýjan samning hjá félaginu.

Hinn 28 ára gamli Elneny verður samningslaus í sumar.

„Auðvitað er ég alltaf tryggur Arsenal," sagði Elneny aðspurður út í samningamál sín.

„Ef Arsenal segir við mig: 'Skrifaðu undir nýjan samning' þá mun ég auðvitað glaður gera það."

Elneny var á láni hjá Besiktas á síðasta tímabili en hann hefur náð að vinna sig ofar í goggunarröðinni hjá Mikel Arteta á þessu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner