Fotbolti.net
18.03.21 - 21:31
Victor Pálsson

Segir Traore henta Liverpool fullkomlega

Segir Traore henta Liverpool fullkomlega
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool ætti að skoða þann möguleika að kaupa Adama Traore frá Wolves í sumar að sögn fyrrum framherjans, Emile Heskey.
Traore spilar með Wolves í dag en hann er gríðarlega kraftmikill leikmaður sem býr yfir rosalegum hraða.

Heskey telur að Traore henti leikstíl Liverpool sem á það til að sækja mjög hratt upp völlinn með mörgum mönnum.

„Ég tel að hann henti mörgum liðum en hann hentar Liverpool 100 prósent," sagði Heskey.

„Ef þú skoðar Liverpool á síðustu leiktíð þá voru mörg mörkin þeirra eftir hraða skyndisókn. Hann hentar því klárlega."

„Það er engin ástæða fyrir því að hafa ekki samkeppni í mörgum stöðum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.