Fotbolti.net
18.04.21 - 13:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Meistaradeild kvenna: PSG sló Evrópumeistara Lyon úr leik

Grace Geyoro

Grace Geyoro

Canon

Mynd: EPA

Hertz
Lyon W 1 - 2 PSG W
1-0 Catarina Macario ('4 )
1-1 Grace Geyoro ('24 )
1-2 Wendie Renard, sjálfsmark ('61 )
PSG er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-2 útisigur á Lyon í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum. Lyon vann fyrri leikinn 0-1 á útivelli en þar sem PSG skoraði tvö útivallarmörk í dag fer liðið áfram á útivallarmörkum skoruðum.

Sara Björk Gunnarsdóttir lék ekki með Lyon en hún hefur glímt við meiðsli að undanförnu.

Lyon komst yfir í leiknum en PSG svaraði með tveimur mörkum, seinna markið var sjálfsmark frá Wendie Renard.

PSG mætir Barcelona í undanúrslitunum og Bayern Munchen mætir Chelsea í hinni viðureigninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.