Fannst Óskar gera vel og Kári Árna líka mjög sannfærandi
Auglýsing

Björn Þór Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Björn Þór Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag er stóri dagurinn, Besta deild karla er að fara af stað. Opnunarleikur Víkings og FH er í kvöld.
Í síðustu viku var gefin út auglýsing fyrir deildina sem vakti mikla athygli. Leikmenn og þjálfarar Bestu deildana fara þar með stórleik. Hægt er að sjá auglýsinguna með því að smella hérna.
Björn Þór Ingason, markaðsstjóri ÍTF, var mjög ánægður með það hvernig auglýsingin heppnaðist.
„Ég er hrikalega sáttur," sagði Björn í viðtali við Fótbolta.net í síðustu viku.
Hann var spurður að því hvort einhver frammistaða hefði komið meira á óvart en önnur. „Mér fannst Óskar Hrafn gera mjög vel. Kári Árna var líka mjög sannfærandi sína í hlutverki. Það voru allir að gera sitt besta og við erum rosalega ánægð með alla."
Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan og um að gera að hita upp fyrir leik kvöldsins með því að horfa á þessa frábæru auglýsingu.