lau 18. maí 2019 18:33
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: KF og Álftanes elta Kórdrengi - Alexander Már setti fjögur
Alexander Már er leikmaður umferðarinnar í 3. deildinni.
Alexander Már er leikmaður umferðarinnar í 3. deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KF og Álftanes unnu leiki sína í 3. deildinni í dag og eru komin með sjö stig eftir þrjár umferðir. Liðin eru tveimur stigum á eftir toppliði Kórdrengja sem ætlar sér beint upp úr deildinni.

Álftanes lagði Sindra að velli á meðan KF rúllaði yfir KH. Alexander Már Þorláksson setti fjögur fyrir KF.

KV tapaði þá sínum fyrstu stigum er Einherji vann sín fyrstu þrjú. Todor Hristov gerði bæði mörkin í 2-1 sigri Einherja á heimavelli. Oddur Ingi Bjarnason skoraði fyrir KV.

Sameinað lið Hattar og Hugins er þá komið með sitt fyrsta stig, eftir 1-1 jafntefli við Reyni í Sandgerði.

Álftanes 2 - 0 Sindri
1-0 Magnús Ársælsson ('48)
2-0 Jón Helgi Pálmason ('57)

Einherji 2 - 1 KV
1-0 Todor Hristov ('46)
2-0 Todor Hristov ('54)
2-1 Oddur Ingi Bjarnason ('63)

KF 5 - 1 KH
1-0 Alexander Már Þorláksson ('4)
2-0 Alexander Már Þorláksson ('17)
3-0 Vitor Vieira Thomas ('30)
3-1 Sveinn Ingi Einarsson ('51)
4-1 Alexander Már Þorláksson ('65)
5-1 Alexander Már Þorláksson ('90)

Reynir S. 1 - 1 Höttur/Huginn
0-1 Markaskorara vantar ('72)
1-1 Markaskorara vantar ('94)

Markaskorarar af urslit.net
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner