Heimild: KF
KF bætti við sig tveimur leikmönnum fyrir gluggalok, en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti á miðvikudagskvöld. Um er að ræða tvo leikmenn frá Magna í Grenivík sem komu á lánssamningi.
Björn Andri Ingólfsson er kominn aftur á láni til KF en hann lék með KF á síðustu leiktíð. Hann skoraði sex mörk í tuttugu leikjum og var markahæstur hjá KF í fyrra.
Birkir Már Hauksson kemur einnig frá Magna að láni, hann er 20 ára og hefur leikið upp yngri flokkana hjá Þór en á ennþá eftir að leika KSÍ leiki fyrir meistaraflokk.
KF mætir í dag KH á Ólafsfjarðarvelli. KF er með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar á meðan KH hefur eitt stig.

Athugasemdir