Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 18. maí 2022 17:00
Elvar Geir Magnússon
Ráðleggur Ten Hag að kaupa Bowen
Jarrod Bowen hefur átt frábært tímabil.
Jarrod Bowen hefur átt frábært tímabil.
Mynd: EPA
Erik ten Hag ætti að kaupa Jarrod Bowen til að leysa vandamál Manchester United hægra megin í sóknarlínu liðsins.

Þetta segir Andy Townsend, fyrrum leikmaður Chelsea og Aston Villa.

Bowen hefur verið funheitur með Hömrunum á þessu tímabili, skorað 18 mörk og átt 13 stoðsendingar.

„Jarrod Bowen hefur verið stórkostlegur á tímabilinu. Ég þori að veðja að West Ham fái tilboð í hann í sumar. Ég myndi alltaf kaupa hann til Manchester United, hann getur spilað út um allt. Hjá United myndi ég nota hann hægra megin í sóknarlínunni," segir Townsend.
Athugasemdir
banner
banner
banner