Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 18. maí 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu vörslur Samba og fagnaðarlætin að leikslokum
Mynd: Getty Images

Nottingham Forest komst í úrslitaleik umspilsins um sæti í ensku úrvalsdeildinni með sigri eftir vítaspyrnukeppni gegn Sheffield United í gærkvöldi.


Brice Samba markvörður Nottingham var hetjan þar sem hann varði tvisvar frábærlega í leiknum áður en komið var í vítakeppnina. Þar gerði hann sér lítið fyrir og varði þrjár spyrnur af fjórum frá Sheffield.

Stuðningsmenn Nottingham voru snöggir að hlaupa inn á völlinn til að fagna með leikmönnum að leikslokum og má sjá skemmtilegt myndband af því hér fyrir neðan.

Hægt er að sjá magnaða vörslu á 115. mínútu með að smella hér.

Hægt er að sjá vítakeppnina með að smella hér.

Nottingham mætir Huddersfield Town í úrslitaleiknum sunnudaginn 29. maí.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner