KFG í 2. deildinni hefur fengið þá Ólaf Bjarna Hákonarson og Helga Jónsson á láni frá Stjörnunni.
Helgi er fæddur árið 2001 og á að baki þrjá leiki fyrir U16 ára landsliðið.
Ólafur Bjarni er árinu eldri og hefur hann spilað fjóra leiki fyrir U18 ára landslið Íslands.
Þeir eru báðir uppaldir Stjörnumenn en þeir koma til með að spila síðari hluta mótsins með KFG.
KFG er í 10. sæti deildarinnar með 12 stig en þeir verða klárir í slaginn gegn Dalvík/Reyni er liðin mætast á morgun.
Athugasemdir