Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 18. júlí 2022 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Forest kaupir tvo leikmenn frá Huddersfield
Lewis O'Brien í leik með Huddersfield Town
Lewis O'Brien í leik með Huddersfield Town
Mynd: Getty Images
Nýliðar Nottingham Forest eru að ganga frá kaupum á Lewis O'Brien og Harry Toffolo, leikmönnum Huddersfield Town í ensku B-deildinni, en þetta herma heimildir Sky Sports.

O'Brien er 23 ára gamall miðjumaður sem er uppalinn hjá Huddersfield en hann á 131 leik og 8 mörk að baki fyrir aðallið félagsins.

Þá er Toffolo 26 ára gamall og spilar stöðu vinstri bakvarðar en hann hefur spilað fyrir Huddersfield síðustu tvö ár. Hann var áður samningsbundinn Lincoln City, Millwall og Norwich City.

Forest er að ganga frá kaupum á leikmönnunum en þeir koma til með að kosta um 10 milljónir punda.

Þeir munu gangast undir læknisskoðun hjá félaginu á morgun áður en þeir skrifa undir hjá félaginu.

Forest hefur þegar eytt um 60 milljónum punda í sumarglugganum til þessa.
Athugasemdir
banner
banner
banner